Ruslapressan · Karapressan
Spurt og svarað
Svör um Ruslapressuna og Karapressuna: stærðir, notkun, þjöppun og sendingar.
Veldu spurningu til að sjá svarið.
Úr hvaða efni er Ruslapressan?
Ruslapressan er úr duftlökkuðu stáli.
Á hvaða tunnur passar Ruslapressan?
Ruslapressan hentar fyrir 120 og 240 lítra hjólatunnur og stærra hólfið í tvískiptum 240 lítra tunnum. Ef þú ert óviss um þína tunnu skaltu hafa samband við okkur áður en þú pantar.
Hvað getur Ruslapressan þjappað sorpinu mikið?
Áætluð þjöppunargeta er um 70% fyrir blandaðan úrgang, 90% fyrir plast og 80% fyrir pappa. Viðmiðin byggjast á eigin prófunum með venjulegu heimilissorpi; raunveruleg þjöppun fer eftir innihaldi tunnunnar.
Er hægt að nota sömu Ruslapressuna fyrir margar tunnur?
Já, þú getur fært sömu pressuna á milli tunna sem hún passar á. Henni er krækt undir lamirnar aftan á tunnunni við notkun og hún tekin frá aftur að henni lokinni.
Hvað tekur langan tíma að fá Ruslapressuna senda?
Afhendingartími fer eftir sendingarleið og áfangastað. Hafðu samband við okkur fyrir pöntun ef þú þarft vöruna fyrir ákveðinn dag, svo við getum staðfest áætlaðan afhendingartíma.
Sendið þið um allt land?
Já, við sendum um allt land með Dropp eða Póstinum. Einnig er hægt að óska eftir annarri sendingarleið; hafðu samband við okkur til að semja um hana.
Þarf að setja Ruslapressuna saman?
Já, fylgja þarf samsetningarleiðbeiningunum áður en hún er notuð. Gakktu úr skugga um að allir hlutar séu tryggilega festir áður en þú byrjar að pressa.
Hvernig nota ég Ruslapressuna?
Opnaðu tunnuna alveg, leggðu lokið aftur og kræktu pressunni undir lamirnar aftan á tunnunni. Settu pressuna ofan á úrganginn, stattu fyrir framan tunnuna og dragðu handfangið niður. Fylgdu leiðbeiningunum og beittu ekki of miklu afli.
Hvar geymi ég Ruslapressuna?
Hægt er að geyma Ruslapressuna á bak við tunnuna eða hengja hana upp með veggfestingu. Veggfesting fylgir Karapressunni og þeirri útgáfu af Ruslapressunni sem heitir „með veggfestingu“.
Hver er munurinn á Ruslapressunni og Karapressunni?
Ruslapressan er ætluð fyrir 120 og 240 lítra tunnur. Karapressan (áður Ruslapressan PRO) er ætluð fyrir 660 lítra hjólakör og 240 lítra tunnur. Veldu útgáfu eftir stærð tunnunnar eða karsins.
Er eitthvað annað sem þú vilt vita?
Við hjálpum þér að velja réttu pressuna og svörum spurningum um pöntun og sendingu.

